RTAS er löggilt hönnunar- og ráðgjafarstofa. Okkar helstu verkefni snúa meðal annars að rafhönnun lág- og smáspennu, stjórnbúnaður, brunakerfi, lýsingarhönnun, verkumsjón, úttektir ofl.
Við hönnum stjórnskápa og PLC kerfi af ýmsum toga. Notum ePlan Pro Panel fyrir nákvæma 3D hönnun og sjálfvirka gagnaframleiðslu.
Hönnun á aðaltöflum og afldreifikerfum fyrir iðnað og stærri mannvirki.
Sérhæfð ráðgjöf og lýsingarhönnun unnin í DIAlux.
RTAS ehf. starfar samkvæmt fyllstu fagmennsku með viðurkenndum sérfræðingum sem búa yfir löggildingu frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS).
Hjá okkur starfa hönnuðir með full réttindi til að gera séruppdrætti raflagna og rafkerfa skv. lögum 160/2010.
Við búum yfir meistararéttindum til ábyrgðar rafvirkjunarstarfa við lágspennuvirki skv. reglugerð.
Hönnunargögn og 3D módelsmíði unnin í ePlan Pro Panel.
Við veitum sérhæfða ráðgjöf og hönnun fyrir hvers kyns rafkerfi. Sendu okkur póst og við svörum innan 24 stunda.